mán. 31.12.2007
Jæja , þá er komið að því
Sp: Sæll Gillz. Hvernig get ég orðið jafn stæltur og fallegur eins og þú?
Sv: Sæll vertu. Það eru ágætis líkur á því að þú getir það aldrei. Þessi gen, þessi agi, þessi jákvæðni sem að Stóri G-Maðurinn er með er eitthvað sem að hinn almenni Jón Jónsson hefur ekki. Ef þú missir ekki úr æfingu næstu 7 árin þá áttu séns!
Þegar hinn venjulegi holgóma Íslendingur er í Smáralindinni að máta föt í Zöru. Hvar er G-Maðurinn þá? Á réttstöðuæfingu í Sporthúsinu nýbúinn að æla á gólfið.
Þegar venjulegt fólk er að borða franskar, kokteilssósu og kók þá er G-Maðurinn með kjúkling og vatn.
Æfðu eins og rjómabolla, og þú verður rjómabolla. Æfðu eins og G, og þú verður eins og G.
Kv, G-Maðurinn
Athugasemdir
va ingi þurt glataður.....
neda (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 14:45
Mér finnst G maðurinn ofsalega fyndinn í svona fimm mínútur í einu, svo hata ég hann bara. Ekki alveg að gera sig að vera "bara" cocky og bakka það ekki upp með neinum sérstökum hæfileikum í öðru en að mæta í æfingu. Kannski er það bara hæfileikinn, æj, plís.
Daelba Alpha (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 01:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.